Málþing á vegum AÍ og LHÍ
Föstudag 20. maí kl. 12:10 – 13:00
Salur A, Þverholti 11, LHÍ

 
Á málþinginu verður fjallað um samhengi arkitektúrs og borgarrýma. Sjónum er beint að miðbænum og gæðum nærumhverfis með vísun í umfjöllun undanfarins misseris. Rýnt verður í ferli og verkfæri við mótun byggðar. Fjallað verður á gagnrýninn hátt um skörun arkitektúrs, borgarrýma og skipulags og hvernig ákvarðanir um framkvæmdir geti tekið mið af slíkri skörun.
 
Bjarki Gunnar Halldórsson arkitekt og Steinþór Kári Kárason arkitekt og prófessor í arkitektúr við LHÍ flytja stutt erindi. Að loknum erindum verða pallborðsumræður.
 
Bjarki Gunnar Halldórsson útskrifaðist úr arkitektanámi í Danmörku árið 2008. Hann hefur unnið á teiknistofum hér á landi sem og í London og komið að fjölbreytilegri flóru verkefna, litlum sem og stórum. Bjarki Gunnar hefur einnig sinnt ritstjórnarstörfum og verkefnum á sviði kennslu og arkitektúrs.

Steinþór Kári Kárason útskrifaðist úr arkitektanámi í Lausanne í Sviss árið 1998. Í framhaldinu vann hann hjá Studio Granda í Reykjavík og hjá Tony Fretton Architects í London. Frá árinu 2004 hefur hann starfrækt arkitektastofuna Kurtogpi ásamt Ásmundi H. Sturlusyni. Steinþór hefur komið að kennslu í arkitektúr í LHI frá árinu 2002 og verið prófessor frá 2010. Hann hefur komið að kennslu í ýmsum skólum og verið gestaprófessor í EPF Lausanne í Sviss.

Facebook viðburður