Óskað er eftir framboðum til stjórnar Listaháskóla Íslands.

Bakland Listaháskóla Íslands auglýsir eftir framboðum til stjórnar Listaháskóla Íslands. Bakland Listaháskóla Íslands skipar þrjá fulltrúa af fimm í stjórn Listaháskólans og kjörtímabil hvers stjórnarmanns er þrjú ár. Kosið er um eitt sæti stjórnarmanns og eins til vara ár hvert.

Stjórnin stendur vörð um hlutverk skólans og gætir þess að starfsemin þjóni settum markmiðum. Hún ber ábyrgð á rekstri, fjárhag, eignum og ákvarðar skólagjöld. Stjórnin ræður jafnframt í stöðu rektors. Stjórnarfundir eru að jafnaði mánaðarlega og er stjórnarsetan launuð.

Við ákvörðun um fulltrúa í stjórn LHÍ skal haft í hávegum að téðir fulltrúar skuli vera starfandi og/eða viðurkenndir lista- eða fræðimenn á fagsviðum LHÍ. Fulltrúar menningarstofnana og atvinnulífs eru jafnframt gjaldgengir til setu í stjórn LHÍ.

Frambjóðendur skulu ekki hafa hagsmuni af rekstri skólans, sbr. skipulagsskrá Listaháskóla Íslands og starfsreglur stjórnar Listaháskóla Íslands. Að jafnaði skal ráð fyrir því gert, að stjórnarmenn sitji að hámarki tvö kjörtímabil í röð í stjórn LHÍ. Leitast skal við eins og kostur er að fulltrúar Baklandsins í stjórn LHÍ endurspegli fræðasvið skólans.

Framboð skulu berast á netfangið baklandsstjorn [at] lhi.is með upplýsingum um menntun og fyrri störf fyrir 26. mars 2016

Núverandi stjórn skipa Kolbrún Halldórsdóttir leikari og leikstjóri, formaður og Markús Þór Andrésson myndlistarmaður og sýningarstjóri sem skipuð eru af menntamálaráðherra og Halla Helgadóttir hönnuður, Jóhannes Þórðarson arkitekt og Jón Ólafur Ólafsson arkitekt sem eru fulltrúar Baklandsins.  Kjörtímabili Jóns Ólafs Ólafssonar er að ljúka.