Miðvikudaginn 3. febrúar kl. 12.15 heldur Einar Gylfason erindið Einkenni í fyrirlestraröð hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, SNEIÐMYND í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A.
 
Einar útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991 og hefur starfað bæði hér heima og í Bandaríkjunum allar götur síðan. Einar hefur rekið hönnunarstofuna Leynivopnið frá árinu 2010 og kennt merkjafræði við Listaháskóla Íslands frá árinu 2013.

Í þessum fyrirlestri mun Einar sýna helstu verk Leynivopnsins og ræða áhugamál sín á sviði hönnunar en merkjagerð og leturmeðhöndlun skipa þar stóran sess. Einnig verður fjallað um óvænt samstarf við vöruhönnuð og kynni grafísks hönnuðar af heimi vöruhönnunar og þróunar. 

Facebook viðburður

 

Sneiðmynd - skapandi umbreyting

Í fyrirlestrum vetrarins kynna kennarar hönnunar- og arkitektúrdeildar eigin hönnunarverkefni og rannsóknir og ræða tengsl þeirra við kennslu í námskeiðum við deildina. Auk þess að fjalla um eigin verkefni verða tengsl hönnunar, sköpunar og rannsókna, kennslu og þekkingaröflunar rædd út frá ýmsum sjónarhornum. 

Við hönnunar- og arkitektúrdeild er boðið upp á nám á fjórum námsbrautum til bakkalárgráðu, í arkitektúr, fatahönnun, grafískri hönnun og vöruhönnun, auk þess sem boðið er upp á meistaranám í hönnun. Áhersla er lögð á að nemendur kunni skil á fræðilegum forsendum hönnunar og geti út frá þekkingu sinni tekið ábyrga afstöðu til umhverfis og samfélags. Nemendur eru stöðugt hvattir til að leita nýrra lausna og leiða og leggja sérstaka rækt við frumleika, ímyndunarafl og gagnrýninn hugsunarhátt og endurspeglast þessi áhersla einnig i í kennslu og rannsóknum kennara.

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og er fagfólk, nemendur og áhugafólk um hönnun hvatt til að mæta. 

Hádegisfyrirlestrarnir eru í sal A í húsnæði Hönnunar- og arkitektúrdeildar að Þverholti 1. Allir velkomnir.