Halldóra hefur mikla og fjölbreytta reynslu á sviði grafískrar hönnunar auk langrar reynslu af háskólakennslu á því sviði. Hún hefur starfað sem grafískur hönnuður, hönnunarstjóri og listrænn stjórnandi á hönnunarstofum og einnig starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður, hugmyndasmiður og ráðgjafi. Þá hefur hún stýrt verkefnum í grafískri hönnun, markaðssetningu og nýsköpun og setið í ýmsum dómnefndum og ráðgjafanefndum á þeim sviðum.  Í álitsgerð dómnefndar er tekið fram að Halldóra sé „djarfur og frumlegur hönnuður með listræna sýn á greinina.“

Halldóra hóf störf sem stundakennari við Listaháskólann árið 1999 og tók  við starfi fagstjóra grafískrar hönnunar 2006. Síðan 2009 hefur hún gegnt starfi háskólakennara með starfsheiti lektors.