Auður Ösp Guðmundsdóttir vöruhönnuður heldur fyrirlestur í Opna
listaháskólanum, hönnunar- og arkitektúrdeild miðvikudaginn 28.mars
kl.12:00, Skipholti 1, stofu 113.

Auður Ösp Guðmundsdóttir útskrifaðist sem vöruhönnuður frá
Listaháskóla Íslands vorið 2010 og hefur síðan þá verið sjálfstætt
starfandi. Hún hefur unnið mikið í samstarfi við Emblu Vigfúsdóttur sem
útskrifaðist á sama tíma og er nú í meistaranámi í hönnun við Danmarks
Design School í Kaupmannahöfn.

Auður mun í fyrirlestrinum segja frá verkefni sem þær unnu fyrir
bændurna á Læk í Flóa. Auður og Embla hönnuðu fyrir þau verslun sem fékk
nafnið Búbót en einnig hönnuðu þær ískaldan matarglaðning fyrir
verslunina sem verður hennar sérstaða. Ísinn er innblásinn af íslenskum
matarhefðum, réttum og jurtum. Sem dæmi má nefna grjónagrautsís með
brenndu kanilsmjöri sem var frumsýndur í Brimshúsinu á Hönnunarmars og
er sá fyrsti í línunni. Bragðtegundirnar voru unnar undir handleiðslu
landsliðs matreiðslumannsins Gunnars Karls Gíslasonar.

Auður mun fara yfir hönnunarferlið frá upphafi hugmyndar til lokaframleiðslu.

Allir velkomnir.