Barbara hefur í fjölda ára verið virk í danssenunni í New York bæði sem danshöfundur, sviðslistamaður, kennari og master kennari í Klein tækni. Hún er einnig með réttindi í Zero Balancing.  Barbara er meðlimur í Movement Research í NY og kennir þar reglulega, auk þess hefur hún kennt í háskólum og sýnt verk sín um víða veröld.

Barbara mun kenna dansnemum á námskeiðinu Anatómía, ATN0001L, þar sem hugmyndafræði Klein Tækninnar verður kynnt fyrir nemendum.

Nánari upplýsingar um Barböru og Klein tæknina má finna á vefsíðu hennar: